Tjekkið á þessari snilldPétur Oddbergur Heimisson
Langur tími án skrifa...Pétur Oddbergur Heimisson
Púff... Vika síðan ég skrifaði síðast. Ég biðst afsökunar. Hef ekki alveg komist í bloggfílinginn.. Það er margt búið að gerast, ég missti 2 putta í vinnuslysi. Nei, ekki alveg.. Ég er búinn með Háskólann fyrir utan tvö endurtektarpróf. Það er ekki eins og það sé eitthvað rosalegt, tvö próf.. :P Ég er einnig alveg búinn í Söngskólanum....
Á föstudaginn fór ég í vísindaferð. Er að pæla í að sleppa því að segja hvert ég fór í vísindaferð. Skammast mín pínu.. :P
Eftir vísindaferðina fór ég, Ylfa, Ninna, Arnar og Ingó heim til Ingó þar sem hann bauð mér upp á glas af einhverju sem ég man ekki hvað heitir. Það bragðaðist mjög vel. Við fórum síðan á Ara í ögri og ég keypti mér þar alkahól eins og mér einum er lagið.
Tók samt ekki lagið.. Ef þið skiljið hvað ég á við? ;) Eftir þessa skemmtilegu veru fór ég held ég á Vegamót þar sem ég komst ekki inn. Ég endaði á Prikinu og var þar til 5 eða eitthvað. Ég lít á Prikið sem endastöð. Þetta er svona svipað og fara upp í strætó á Hlemmi (byrja að drekka heima eða einhvers staðar annars staðar en í bænum) fara síðan í laugardalinn (Ari í ögri) og þaðan í Víkingshverfið (Kofann) og enda síðan á Skerjafirði á endastöð (Prikið).. Án efa ein versta líking sem ég hef komið með en hún var það slæm að mér fannst ágætt að hafa hana með.. :D
Á laugardeginum var minn rólegur.. Síðan er vikan búin að vera bara fín. Stofnun fyrirtækja er búið og við fluttum í dag. Rosalega vel heppnað og örugg 8 í hús.. :D
Nú er ég kominn heim af sumaróperuæfingu og svefninn innan seilingar. Ekki vitlaust að vakna snemma á morgun og byrja að læra. Mér veitir ekki af því... :P
Talandi um sumaróperuna. Við frumsýnum 2. júní. Ég hvet alla til þess að kíkja á þessa sýningu. Auglýsi betur þegar ég hef einhverjar almennilegar upplýsingar.. :)
En já, nóg af því.. Heyrumst síðar... :)
9. færslan. VINNA!!Pétur Oddbergur Heimisson
Ég er kominn með VINNU. Fyrirtækið heitir Flugfélag Íslands. Til hamingju ég og til hamingju Flugfélag Íslands!! :D
Hvað er óeðlilegt við þessa mynd?
8. færslan - Já...Pétur Oddbergur Heimisson
Púfff.. Það er bara sett pressa á mann. Ágætt samt. :) Hvað hefur gerst í lífi mínu síðan 3. maí.. Það er í rauninni rosalega margt. Ég tók 6. stigs söngprófið á laugardaginn, náði Fjármálaprófinu, gekk nakinn niður laugarveginn, borðaði tvo hamborgara, tvær pylsur og fékk mér örfáa bjóra. Virkilega skemmtileg næstum því vika. Við skilum verkefninu, stofnun fyrirtækja, á föstudaginn. Það er stefnt á að halda vísindaferð um kvöldið. Hversu mikil snilld er það... Stefni á að vera duglegur að nýta mér fría bjórinn, ef ég kemst þ.e.a.s. í þessa ferð og ef af henni verður.. :)
Ég er orðinn dálítið þreyttur... Er að hugsa um að fara að sofa... :P Góða nótt...
7. færslanPétur Oddbergur Heimisson
Afsakið hvað það er langt síðan ég skrifaði síðast. :) Ég kemst ekki á netið heima þannig að ég hef ekkert náð að skrifa. Það hefur margt gerst í lífinu hjá mér síðustu daga. Ég er búinn að falla í annað skiptið. Ég veit, en svona er þetta... Ég er að fara að taka söngprófið á laugardaginn, 6. maí. Á eftir að massa þetta próf. :PEr núna í stofnun og er að hugsa um að halda áfram. Heyrumst síðar.... :)
6. Færslan. Óvæntasta fyllerí fyrr og síðar.Pétur Oddbergur Heimisson
Góðan daginn.
Dagurinn í gær var geðveikur. Ég fór niður í hljómskálagarð, eða hljómskólagarð fyrir tónlistarmennina sem eru að læra, í gærkvöldi, réttara sagt kl. 21:00 til þess að hitta teamurban + maka og fleiri. Ég fór sérstaklega ekki í ríkið í gær til þess að drekka ekkert um kvöldið, þess vegna tók ég með mér appelsín í hálfs líters flösku sem ég ætlaði að sötra á. Þegar ég kom þangað var tekið vel á móti mér og Skari sagði við mig "Fáðu þér bjór"... Ég hélt að hann vorkenndi mér af því að ég kom bara með appelsín með mér en þá sá ég að hann var með fulla kerru af bjór sem hann hafði keypt fyrir okkur í tilefni af því að hann átti afmæli daginn áður. Hann fær fullt af prikum fyrir þetta move. Þetta var algjör snilld og ég þakka honum alveg mega vel fyrir þetta. Nóg um það. Ég var þarna til hálf ellefu en þá þurfti ég að yfirgefa svæðið til þess að hitta 3 stelpur sem eru með mér í Söngskólanum. Ég þurfti þess ekki en ég var samt búinn að lofa því daginn áður. Það var ekki slæm ákvörðun. Ég mætti þarna, orðinn frekar fullur og lét þær vita svo þær héldu ekki að ég væri eitthvað skrýtinn. Ein þeirra sagði "ég sé það á augunum á þér, augun eru svo glær"... Frábært hugsaði ég.. :) En eftir hálftíma setu á Kaffi París, sem er b.t.w. mjög flottur staður, fórum við heim til Völu til þess að skila bílnum hennar. Hún sá mig og langaði að vera eins og ég.. Full...!
Eftir að við vorum búin að því fórum við aftur niður í bæ og þá var ferðin heitið á Kaffibarinn. Mér finnst samt eins og við höfum farið eitthvað áður en við fórum þangað... Já, Vá, við fórum á Ara í Ögri. Vorum þar alveg heillengi. Virkilega skemmtilegt að vera þar. Ég þekkti alveg mega mikið af fólki þar. Kvennó var að dimmitera um daginn og krakkarnir fóru þangað (á Ara) eftir partýið sem þau voru í.
Þegar það var búið fórum við af Ara og skelltum okkur á Jóa. Nei, djók. Við fórum á Kaffibarinn, ég, Jenný, Vala, Sæunn og svo hittum við Bassa og Agga á leiðinni og þeir komu með okkur. Á KB voru Hallgrímur og Nonni... Allavega þeir.. :)
Það var mega gaman á KB og þar hittum við meðal annars stelpur sem við könnuðumst við og spjölluðum aðeins við. Alltaf gaman að því.. Eftir að KB-ruglinu lauk labbaði ég heim með viðkomu á Kofanum. Ég þurfti mikið að losa mig við þvag og mér fannst það tilvalið að gera það þar. Tómas var ekki við en bróðir hans, Gummi, var í dyrunum. (Náðuði þessum?)!:D
Á kaffibarnum hitti ég Hlíf sem var að vinna með strákunum hjá Einari Skúlasyni. Hún var mjög hress en hótaði samt að lemja mig. En, það var vonandi meira í gríni sagt... :D:D:D Stelpur stelpur...:)
En já, ég ætla að skreppa í Kringluna. Bassi er búinn að bjóða mér í heimsókn í kvöld og maður verður að koma með eitthvað í partýið. Snakk og kannski Bakkus. Samt ekki mikið af honum þar sem ég er að fara í söngpróf eftir nákvæmlega viku. Kl. 14:00, 6. maí.
Bless í bili...
Mynd úr Hljómskálagarðinum. Tengist gærkvöldinu á engan hátt.
Sjáiði samt,þau eru með Appelsín. Ég er ekki sá eini sem hefur farið með
Appelsín í Hljómskálagarðinn.
5. færslan. Sumarið er komið... Loksins.. :)Pétur Oddbergur Heimisson
Ég vildi bara óska ykkur Gleðilegs sumars. Ef það er ekki komið núna þá veit ég ekki hvað. :D
Það er alltaf sumar hjá þessum tveimur. :)
4. færslan. Atvinnuviðtal, heiðursgestur, söngtími, fall og Stofnun fyrirtækjaPétur Oddbergur Heimisson
Þegar þú last fyrirsögnina hugsaðir þú, já, eitthvað sem hann hefur "afrekað" síðustu vikuna en nei, þetta á eingöngu við daginn í dag. Ég fór í atvinnuviðtal kl. 9:30 sem gekk nokkuð vel fyrir sig. Kl. 11:30 var ég heiðursgestur á fótboltaleik milli kennara og stjórnar hjá Kvennó. Mér leið eiginlega eins og kúk, engin smá athygli sem maður fékk, allir að furða sig á hvaða strákur þetta er. Ég hugsa að svona 40 % af fólkinu hafi munað eftir mér síðan ég var í Kvennó, restin, busar og þeir sem eru á 2. ári hafa aldrei séð mig. :) Fyndið en samt skemmtilegt. Þegar þetta var búið fór ég í söngtíma og það gekk rosalega vel, söng lagið "Draumalandið" og kennarinn var mjög ánægður með mig. Þetta lag er mjög lúmskt og miklu erfiðara en fólk sem hefur bara heyrt það heldur fram. :) Prófið að syngja það. En nóg af því, ég fór síðan niður í skóla og frétti að einkunnin fyrir Rekstrarbókhaldið væri komin inn. Ég var næstum því búinn að kúka á mig (annað skiptið nota ég kúk í þessu bloggi) úr stressi en samt var ég frekar viss um að falla. Það reyndist rétt og ég er þar með fallinn í fyrsta skipti í prófi í HR sem skiptir máli.. Klöppum ekki fyrir því. Svo er ég búinn að vera að reyna að vinna í þessu Stofnun fyrirtækja verkefni. Það er ekkert smá skemmtileg vinna en ég held að það verði algjör dauði þegar nær dregur skil. Púfff... Nú er ég að fara að koma mér heim, er að hugsa um að koma við á leiðinni heim og kaupa smá gjöf fyrir Skara sem er 22 ára í dag. Til hamingju með daginn strákur. Svo þarf ég að fara að læra fyrir tónlistarsögupróf sem er á morgun. Púff... Nóg að gera... :SEn já, ég bið að heilsa ykkur í bili....
3. færslanPétur Oddbergur Heimisson
I woke up around 10 this morning.. Nei vá, aðeins að ruglast, ég er búinn að tala svo mikla ensku upp á síðkastið. En dagurinn í dag var frekar góður bara. Ég vaknaði samt aðeins of seint, fór upp í skóla. Var þar til svona 1 leytið og fór svo heim og fór að borða. Ég vann í verkefninu heima og horfði síðan á snilldar fótboltaleik. Barcelona - AC Milan þar sem Barcelona komust áfram með því að hafa unnið fyrri leikinn 0-1. Leikurinn endaði sumsagt 0-0 í kvöld. Hörku leikur og eins og Logi Ólafsson komst að orði þá líkti hann leiknum við kynlíf án fullnægingar. Það var nákvæmlega það sem ég hugaði þegar ég horfði á leikinn. Ég hló þegar hann sagði þetta en hugsaði svo "Er þetta ekki hlutur sem maður hugsar inn í sér en sleppir því að opinbera?". Ég veit ekki, eins og ég sagði, mér þótti þetta mjög sniðugt en vafasamt engu að síður. :)En já, eftir leikinn skellti ég mér í fótbolta með HR strákum + 3 ekki HR strákum og það var einstaklega skemmtilegt. Ég held að ég hafi ekki skorað neitt en ég átti nokkur mjög góð skot að marki. (Ömurlegt að segja frá þessu!) :D
En nú er ég kominn heim og sit á klóssettinu að skrifa færsluna þannig að það er ábyggilega komin mjög vond lykt af tölvunni núna. Nei, ég segi svona. En á morgun, kl. 9:30 er Pétur Oddbergur að fara í atvinnuviðtal. Ég hlakka mikið til, ef ég fæ ekki vinnuna þá enda ég örugglega á Kleppi. Mér var nefnilega boðin vinna þar svo fólk misskilji ekki.
En nóg um það. Ég ætla að fara að koma mér í rúmið. Það er að kalla á mig......